Reunion Hvaleyraskóla
28.09.2006 10:45:04 / reunion

Léleg þátttáka

Þar sem það eru svo fáir búnir að boða komu sína í partýið á laugardaginn heima hjá Kollu höfum við ákveðið að hætta við það líka :$

Með kveðju nefndin


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 11:08:12 / reunion

Frestur runninn út..

Þar sem það eru ekki nógu margir búnir að greiða inn á reikninginn til að borga salinn höfum við ákveðið að afpanta hann.

Fyrir þá sem hafa áhuga ætlum við að hittast heima hjá Kollu á Daggarvöllum 4a, íbúð 303 laugardaginn 30. sept kl.20.30

Við ætlum að leggja 500. kall á mann í púkk fyrir veitingum og hver og einn kemur með sitt áfengi.

Þeir sem eru búnir að leggja inn á reikninginn mega senda Kollu meil á kolbrun.bjarnadottir@landsbanki.is til að fá peninginn sinn endurgreiddan.

Reynum nú að mæta sem flest og hafa gaman saman..:)

Kveðja nefndin


» 18 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 21:09:28 / reunion

Koma svo allir...:)

Jæja nú eru aðeins tveir dagar í að fresturinn til að greiða inn á reikninginn fyrir reunionið renni út og aðeins tveir búnir að borga...

Koma svo allir..reynum nú að fjölmenna á þetta reunion þannig að það detti ekki upp fyrir sig...

 Kveðja Nefndin


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 20:54:56 / reunion

Styttist í reunion

Nú styttist óðum í reunionið og eru aðeins 17 dagar til stefnu. Við ætlum að hittast í húsnæði karlakórsins Þrastar, Flatahrauni 21 laugardaginn 30.sept kl.20:30 Dagsetninnunni verður ekki breytt aftur...:)

Verðið er 2000 krónur og innifalið í því er salurinn, snittur, gos, snakk og brjálæðisleg skemmtun..:)

Þeir sem eiga eftir að leggja inn þurfa að leggja inn á reikning 0130-05-064772 kt.230180-5989 fyrir 20. sept þannig að við náum að sjá fjöldann sem ætlar að mæta.

Ef þið eigið eitthvað efni (myndir, myndbönd og annað sem ykkur dettur í hug) endilega komið með það og leyfið okkur hinum að njóta þess með ykkur og rifja upp gamlar minningar.

Vonumst eftir að sjá ykkur sem flest - lofum ykkur frábæru kvöldi..:)

Kveðja nefndin 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 15:45:19 / reunion

Loksins komið að því....

Jæja nú er komið að því að við sem útskrifuðumst árið '96 frá Hvaleyrarskóla höldum reunion..

Stefnan er tekin á að halda það 2. sept. n.k. en staðsetning verður gefin upp síðar.

Vonumst við eftir því að sem flestir komist og endilega skrifið í commentin ef þið hafið eitthvað sem þið viljið koma á framfæri og einnig ef þið sjáið ykkur fært um að koma..

Reynum nú öll að margmenna á þetta reunion þar sem það er kominn langur tími frá því að við höfum öll hist og svo eru auðvitað liðin tíu ár frá því að við útskrifuðumst..:)

Kveðja Nefndin


» 82 hafa sagt sína skoðun